@ Lilja Marteins.
Sækja PDF

Promptbanki

Promptbanki

Greiningartæki fyrir online business

Hvernig þú notar þennan banka

Þessi banki er ekki safn af töfraorðum. Hvert prompt er greiningartæki sem vinnur úr þeim upplýsingum sem þú gefur og því samhengi sem gervigreindin hefur raunverulegan aðgang að. Hvert prompt er skrifað til að virka eitt og sér. Þess vegna er innbyggt í þau að gervigreindin aðgreini það sem hún veit, það sem hún ályktar og það sem vantar.

Þrennt áður en þú byrjar:

  1. Límdu promptið inn í gervigreind að eigin vali. ChatGPT og Claude virka bæði.
  2. Fylltu út það sem stendur í [hornklofum] með þínum eigin upplýsingum. Því nákvæmari sem þú ert, því skarpari verður greiningin. Ef þú hefur ekki tölu eða svar, skrifaðu „veit ekki“. Ekki giska. Promptið segir gervigreindinni að spyrja þegar upplýsingarnar skipta niðurstöðunni máli.
  3. Ekki taka fyrsta svarinu sem lokasvari. Spurðu áfram. Ýttu á móti.

Þú getur sett þessa grunnreglu efst í nýtt samtal, einu sinni. Hún er sérstaklega gagnleg ef þú ætlar að nota fleiri en eitt prompt í sama samtali:

Byggðu svörin á því sem ég set inn í samtalið, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að.

Aðgreindu staðfestar upplýsingar, eldra samhengi sem gæti þurft að staðfesta og ályktanir. Ekki finna upp tölur, hegðun viðskiptavina eða hugsanir þeirra.

Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Vertu bein. Ég þarf greiningu, ekki hvatningu.

Gervigreind hefur tilhneigingu til að fylla í eyður og svara þótt upplýsingarnar dugi ekki. Þessi regla dregur úr því. En þú þarft samt að athuga hvort svarið byggi á raunverulegum gögnum eða ágiskun.


Áttaviti

Byrjaðu hér. Þetta setur allt hitt í samhengi.

Áttaviti

Hvað þetta afhjúparHvort businessinn sem þú ert að byggja stefnir þangað sem þú vilt fara. Eða hvort hann sé byggður fyrir áfangastað sem þú valdir aldrei.

Promptið

„Þú ert reyndur business strategist.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er hvert ég vil fara:
[Lýstu því hvernig þú vilt að businessinn líti út eftir tvö ár. Tekjur, vinnutími, hvað þú selur, hvernig dagurinn þinn lítur út.]

Hér er businessinn eins og hann er í dag:
[Lýstu því sem þú selur núna og á hvaða verði, hvernig þú afhendir það, hversu mikið af tekjunum er háð þér sjálfri, hvað þú ert nú þegar skuldbundin til að gera, og hvað þú vilt hætta að gera. Skrifaðu „veit ekki“ þar sem þú hefur ekki svar.]

Gerðu tvennt:
1. Berðu saman hvert ég vil fara og það sem reksturinn er í raun byggður til að skila. Sýndu mér bilið. Ekki laga það.
2. Segðu mér, miðað við uppbygginguna: hvað er núverandi rekstur í raun hannaður til að hámarka? Tíma, tekjur, þægindi, öryggi eða eitthvað annað?“

Hvernig á að lesa svariðEf áttin sem þú segist vilja og reksturinn sem þú hefur byggt passa saman, þá ertu á réttri leið og það er sjaldgæfara en fólk heldur. Ef þau passa ekki, þá ertu að vinna hörðum höndum í átt að stað sem þú vilt ekki enda á. Liður tvö er oft sá sem stingur: reksturinn er sjaldan hannaður fyrir það sem þú segist vilja.

Greining

Fyrsti hlutinn: Sjáðu hvað er raunverulega að áður en þú lagar nokkuð.

Blindi bletturinn

Hvað þetta afhjúparÞað sem þú sérð ekki sjálf í eigin business. Mynstrið sem þú ert of nálægt til að taka eftir.

Promptið

„Þú ert reyndur business strategist. Hlutverk þitt er ekki að hrósa mér eða staðfesta það sem ég segi. Hlutverk þitt er að sjá það sem ég sé ekki sjálf.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er staðan í businessinum mínum:
[Lýstu businessinum þínum. Hvað selur þú, hverjum, hvað er að virka og hvað er ekki að virka eins og þú vilt.]

Ekki gefa mér lista af ráðum. Finndu eitt undirliggjandi mynstur sem ég er líklega of nálægt til að sjá sjálf. Orðaðu það sem tilgátu, ekki sem staðreynd.

Segðu mér:
1. Sterkasta vinnutilgátan þín um mynstrið.
2. Hvað í lýsingunni bendir til hennar.
3. Eina aðra trúverðuga skýringu.
4. Hversu viss þú ert: lítið, miðlungs eða mikið.
5. Hvaða upplýsingar myndu staðfesta tilgátuna eða veikja hana.“

Hvernig á að lesa svariðFyrsta svarið er oft einkennið, ekki blindi bletturinn sjálfur. Taktu kjarnann og spurðu: „Af hverju er þetta svona?“ Spurðu þrisvar. Passaðu þig samt á einu: gervigreind grípur gjarnan í sálfræði sem hljómar djúpt en er ágiskun. Ótti við sýnileika, fullkomnunarárátta, og svo framvegis. Þess vegna biður þú um sönnun og aðra skýringu. Ef tilgátan stendur ekki á neinu sem þú gafst, þá er hún saga, ekki greining.

Flöskuhálsinn

Hvað þetta afhjúparEina hindrunina sem heldur mest aftur af þeirri niðurstöðu sem þú ert að reyna að ná núna. Ekki listann. Eina atriðið.

Promptið

„Þú ert business strategist sem hugsar út frá flöskuhálsum.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Niðurstaðan sem ég er að reyna að bæta næstu 90 daga er:

[Veldu eina meginniðurstöðu, til dæmis tekjur, sala, fyrirspurnir, stærð lista, endurkaup eða afkastageta. Settu inn mælanlegt markmið ef þú hefur það.]

Hér er staðan, byggð á síðustu 30 til 90 dögum:
[Lýstu businessinum, tölunum eins og þú hefur þær, og hvar hlutir stoppa eða hægja á sér. Skrifaðu „veit ekki“ þar sem þú hefur ekki tölur.]

Veldu einn meginflöskuháls sem heldur mest aftur af þessari niðurstöðu núna. Segðu mér:
1. Hver hann er.
2. Hvað í upplýsingunum bendir til hans.
3. Hvað losnar ef hann er lagaður.

Nefndu aðeins annan möguleika ef upplýsingarnar duga ekki til að greina á milli þeirra. Segðu þá nákvæmlega hvaða upplýsingar myndu skera úr.“

Hvernig á að lesa svariðFlöskuháls er sá staður þar sem allt annað staflast upp fyrir aftan. Að laga eitthvað annað en hann getur virst afkastamikið en hreyfir lítið. Ef gervigreindin gefur þér fimm atriði hefur hún ekki greint flöskuháls. Hún hefur skrifað lista. Þvingaðu fram forgangsröðun. Spurðu: „Hvað af þessu myndi losa mest ef ég lagaði aðeins eitt?“

Tilboðið sem selur ekki

Hvað þetta afhjúparHvar tiltekið tilboð brotnar á leiðinni frá því að fólk sér það þangað til það kaupir.

Promptið

„Þú ert business strategist sem greinir hvers vegna tilboð selja ekki.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er tilboðið:
[Lýstu tilboðinu, verðinu og fyrir hvern það er.]

Hér er leiðin að kaupunum, síðustu [settu inn tímabil, t.d. 30 daga]:
[Settu inn það sem þú veist: hvar þú birtir það, hvaðan umferðin kemur, hversu margir sáu það, hversu margir smelltu eða sýndu áhuga, hversu margar fyrirspurnir eða samtöl, hversu margir keyptu, og hversu margir hættu við eða fengu endurgreitt. Skrifaðu „veit ekki“ þar sem þú hefur ekki tölur.]

Greindu hvar á leiðinni fólk dettur út: sýnileiki, athygli, áhugi, næsta skref, samtal eða sala, greiðsla. Segðu mér hvað tölurnar benda til og hvað þær benda ekki til. Ef of fáir sáu tilboðið til að hægt sé að draga ályktun, segðu það.“

Hvernig á að lesa svariðÞrjú vandamál geta litið eins út að utan en verið mjög ólík. Ef fáir sjá tilboðið hefurðu fyrst og fremst ekki nógu stórt úrtak til að dæma það. Ef margir sjá það en fáir taka næsta skref getur vandinn legið í skilaboðunum, markhópnum eða tilboðinu sjálfu. Ef margir hefja kaup en ljúka þeim ekki getur verið núningur í sölu- eða greiðsluferlinu. Endurgreiðslur eða fráhvarf eftir kaup geta bent til misræmis milli loforðs og afhendingar. Ein tala er ekki heil saga.

Stöðupróf á orðavali

Hvað þetta afhjúparHvaða faglega stöðu orðavalið þitt skapar, og hvort sú staða passar við hlutverkið sem þú vilt selja.

Promptið

„Þú ert strategist með skarpt auga fyrir stöðu og orðaval.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er hvernig ég lýsi því sem ég geri:
[Límdu inn bio, forsíðutexta eða kynninguna sem þú notar.]

Hér er staðan sem ég vil selja:
[Í einni setningu: hvernig viltu að fólk sjái þig? Sem stefnumótandi sérfræðing, sem framkvæmdaaðila, eða eitthvað annað?]

Farðu í gegnum orðin mín og flokkaðu hvert lykilorð eða setningu í eitt af fjórum:
1. Stefnumótandi sérfræðiþekking (þú sérð, greinir og setur stefnu).
2. Framkvæmdahæfni (þú byggir, gerir og klárar).
3. Aðstoðarhlutverk (þú tekur að þér verkefni fyrir aðra).
4. Óljóst eða almennt.

Berðu svo flokkunina saman við stöðuna sem ég sagðist vilja selja. Hvar passar orðavalið, og hvar togar það mig í aðra stöðu? Ekki endurskrifa neitt.“

Hvernig á að lesa svariðÞetta snýst ekki um að orð um framkvæmd séu lakari en orð um stefnu og greiningu. Sumar selja framkvæmd viljandi og græða vel á því. Málið er hvort orðin setja þig í þá stöðu sem þú ætlaðir þér. Ef þú vilt selja stefnu en orðin þín lýsa verkefnum, þá ertu að bjóða annað en þú heldur. Misræmið milli stöðunnar sem þú vilt og stöðunnar sem orðin skapa er upplýsingin.

Tími fyrir pening

Hvað þetta afhjúparHvar þú ert föst í að skipta tíma fyrir pening. Og hvar þakið er.

Promptið

„Þú ert business strategist sem greinir tekjumódel.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er allt sem ég sel og hvernig ég afhendi það:
[Fyrir hvert tilboð: verðið, hversu mikið þú selur af því að meðaltali á mánuði, mánaðarlegar tekjur af því, hvort afhendingin krefst þess að þú sért viðstödd í rauntíma, hversu langan tíma hún tekur með undirbúningi og eftirfylgni, og hversu mikið þú getur raunhæft afhent á mánuði. Skrifaðu „veit ekki“ þar sem þú hefur ekki tölur.]

Aðgreindu fyrst afhendingu sem krefst lifandi viðveru, vinnu sem hægt er að afhenda ósamstillt og tekjur sem halda áfram án nýrrar vinnu í hvert skipti.

Reiknaðu svo, og merktu hverja tölu sem þú áætlar:
1. Hvaða hluti núverandi mánaðartekna er háður því að þú sért sjálf til staðar.
2. Hvaða hlutfall heildarteknanna það er.
3. Hámarkstekjur á núverandi verði miðað við afkastagetu þína. Þakið.
4. Hvað gerist við tekjurnar í veikindum, fríi eða þegar þú vinnur minna.“

Hvernig á að lesa svariðEf stærstur hluti teknanna krefst þess að þú sért viðstödd, þá er reksturinn þú. Það er ekki dómur. Margar reka arðbæran rekstur þannig viljandi. En það þýðir að tekjuþakið ræðst að stórum hluta af tíma þínum. Þú hækkar það ekki endalaust með því að leggja harðar að þér. Þú hækkar það með hærra virði á hverja klukkustund, annarri afhendingu, endurteknum tekjum eða tekjum sem þurfa ekki nýja vinnu í hvert sinn.

Stefna

Annar hlutinn: Veldu hvað kemur næst og í hvaða röð.

Value ladder sem stendur undir tekjumarkmiðinu

Hvað þetta afhjúparHvort þú getir raunhæft náð tekjumarkmiðinu með því sem þú selur í dag, miðað við verð, sölumagn og eigin afkastagetu. Og hvar bilið er.

Promptið

„Þú ert reyndur business strategist sem sérhæfir þig í tekjumódelum og value ladders.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Tekjumarkmiðið mitt er [settu inn upphæð og gjaldmiðil] á mánuði.

Núna sel ég:
[Fyrir hvert tilboð: verðið, hversu langan tíma afhendingin tekur, hversu mikið þú selur af því núna á mánuði, hversu mikið þú gætir mest afhent, og hvort tekjurnar eru endurteknar eða einskiptis. Settu inn það sem þú veist um áhorf, fyrirspurnir og hlutfall sem kaupir. Skrifaðu „veit ekki“ þar sem þú hefur ekki tölur.]

Gerðu þetta:
1. Reiknaðu hversu mikið ég þyrfti að selja af hverju til að ná markmiðinu með núverandi tilboðum.
2. Segðu hvort það er raunhæft miðað við afkastagetu mína og núverandi sölu.
3. Sýndu mér einfaldasta value ladderinn sem gæti brúað bilið án þess að ég vinni fleiri tíma, og nýttu fyrst það sem ég á nú þegar.

Gefðu þrjár sviðsmyndir: varfærna, raunhæfa og metnaðarfulla. Notaðu raunveruleg gögn mín þar sem þau eru til. Þar sem þú þarft að áætla, skráðu forsenduna og sýndu hvernig niðurstaðan breytist ef hún reynist röng. Ef gögnin duga ekki til þriggja trúverðugra sviðsmynda, segðu það. Ekki búa til óskalista af nýjum vörum.“

Hvernig á að lesa svariðHorfðu fyrst á tölurnar, ekki hugmyndirnar. Ef þú þarft að selja hundrað eintök á mánuði til að ná markmiðinu, þá er það ekki áætlun. Það er von. Skoðaðu forsendurnar sem gervigreindin gaf sér: ef þær eru bjartsýnar, þá er ladderinn það líka. Raunhæfur value ladder hefur fá og skýr þrep og eðlilega leið á milli þeirra. Spurðu: hvaða eitt þrep byggir ofan á það sem ég sel nú þegar og eykur tekjurnar án þess að ég byrji frá grunni?

Verðmerki

Hvað þetta afhjúparHvaða skilaboð verðið þitt gæti verið að senda kaupandanum. Miðað við það sem stendur í kringum það.

Promptið

„Þú ert strategist sem les verð sem skilaboð, ekki bara tölu.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er tilboðið, verðið og það sem stendur í kringum það:
[Lýstu tilboðinu og verðinu. Segðu líka: hverju það skilar kaupandanum, fyrir hvern það er, á hvaða markaði, hvaða sönnun eða reynsla stendur á bak við það, hvernig það er afhent og hvað sambærilegt kostar annars staðar ef þú veist það. Skrifaðu „veit ekki“ þar sem þú hefur ekki svar.]

Ekki segja mér hvort verðið sé of hátt eða of lágt. Ekki draga ályktanir um mig sem manneskju. Segðu mér í staðinn:
1. Hvaða skilaboð þetta verð gæti sent, miðað við það sem stendur í kringum það.
2. Hvar verðið og allt hitt segja sömu sögu, og hvar þau stangast á.
3. Hvað myndi styrkja verðið, ef eitthvað.

Ef upplýsingar vantar til að meta þetta, segðu það í stað þess að giska.“

Hvernig á að lesa svariðVerð er skilaboð áður en það er tala. En talan ein segir ekki alla söguna. Það sem stendur í kringum verðið, hvað þú lofar, fyrir hvern, með hvaða sönnun, ræður því hvort verðið hljómar sannfærandi. Ef gervigreindin fer að lýsa þér sjálfri út frá verðinu, þá er hún farin að giska. Haltu henni við það sem hún getur raunverulega séð: hvort verðið og allt í kringum það segja sömu sögu. Þegar þau gera það ekki, þá er misræmið upplýsingin.

Bilið

Hvað þetta afhjúparBilið á milli orðanna sem þú notar og orðanna sem viðskiptavinurinn notar um vandann.

Promptið

„Þú ert copywriter og strategist sem greinir samræmi milli skilaboða og markaðar.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er hvernig ég lýsi tilboðinu mínu:
[Límdu inn textann sem þú notar til að selja.]

Hér er hver hún er og við hvað hún glímir:
[Lýstu manneskjunni. Settu inn það sem þú hefur raunverulega heyrt hana segja, úr samtölum, skilaboðum, sölusímtölum, könnunum eða umsögnum, með hennar eigin orðum ef þú getur. Ef þú hefur ekkert af því, segðu það.]

Áður en þú greinir bilið skaltu flokka upplýsingarnar um hana í tvennt: það sem byggir á beinum orðum eða sýnilegri hegðun og það sem er mín eigin túlkun. Þetta er nauðsynlegur hluti greiningarinnar. Ef uppruninn er óljós og gæti breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig áður en þú heldur áfram.

Settu niðurstöðuna upp í þrjá hluta: orðin hennar, orðin mín og bilið á milli þeirra. Hvar er ég að tala um mína lausn þegar hún er enn í sínum vanda?“

Hvernig á að lesa svariðÞú selur á þínu tungumáli. Hún kaupir á sínu. Bilið þar á milli er þar sem salan lekur út. Ef þú settir inn það sem þú heldur að hún hugsi, frekar en það sem hún hefur sagt, þá er greiningin bara þínar eigin ágiskanir speglaðar til baka. Raunverulegu orðin hennar eru gullið.

Næstu 90 dagar

Hvað þetta afhjúparHvað þú átt að byggja fyrst. Og hvað þú átt að sleppa viljandi.

Promptið

„Þú ert strategist sem hjálpar fólki að forgangsraða.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er staðan mín:
[Hvar ertu núna, hvað viltu hafa náð eftir 90 daga (helst mælanlegt), hvað ertu nú þegar skuldbundin til að gera, hversu marga tíma hefur þú í viku, hvað er þegar í gangi, og eru einhverjir fastir frestir? Skrifaðu „veit ekki“ þar sem á við.]

Gefðu mér:
1. Útkomuna sem allt á að þjóna á þessum 90 dögum.
2. Það eina sem ég ætti að einbeita mér að til að ná henni.
3. Eina vikulega forgangsverkefnið sem heldur því á réttri leið.
4. Þrennt sem ég ætti viljandi að sleppa, þótt það freisti mín.

Þvingaðu fram val. Ekki gefa mér tíu atriði. Ef þú getur ekki valið, segðu hvaða upplýsingar vantar.“

Hvernig á að lesa svariðÁætlun snýst jafn mikið um hvað þú segir nei við og hvað þú segir já við. Ef gervigreindin gefur þér tíu hluti hefur hún ekki forgangsraðað, hún hefur listað. Verðmætasti hluti svarsins er oft það sem hún segir þér að sleppa. Ef það kostar þig ekkert að sleppa því, þá varstu hvort eð er ekki að fara að gera það. Raunveruleg forgangsröðun sker burt eitthvað sem þú vildir gera.

Rödd

Þriðji hlutinn: Segðu það þannig að það lendi.

Röddin þín

Hvað þetta afhjúparMynstrið í þinni eigin rödd. Og það sem hljómar eins og almennt bransamál.

Promptið

„Þú ert ritstjóri með næmt eyra fyrir stíl og rödd.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er sýnishorn af því hvernig ég skrifa, með mínum eigin orðum:
[Límdu inn að minnsta kosti 500 til 1000 orð sem þú hefur skrifað sjálf, úr tveimur eða þremur ólíkum samhengjum. Ekki fágaðan markaðstexta, heldur eitthvað sem hljómar eins og þú.]

Greindu og aðgreindu:
1. Mynstur sem koma aftur og aftur, þ.e. taktur, orðaval, setningaform. Það er röddin þín.
2. Það sem kemur bara einu sinni fyrir og er líklega tilviljun.
3. Orðalag sem hljómar eins og almennt bransamál eða staðlaðir frasar.

Sýndu mér hvaða einkenni eru stöðug og líklega hluti af röddinni minni og hvaða orðalag hljómar almennt eða staðlað. Ekki fullyrða að ég hafi fengið eitthvað að láni nema samanburðargögn styðji það. Ef sýnishornið er of stutt til að greina mynstur, segðu það.“

Hvernig á að lesa svariðRödd þín er mynstrið sem helst stöðugt þegar þú skrifar í ólíku samhengi. Bransamál læðist auðveldlega inn þegar þú reynir að hljóma faglega, en það getur gert textann almennari en hann þarf að vera. Það sem greiningin finnur aftur og aftur er það sem þú átt að varðveita. Orðalag sem hljómar almennt eða staðlað er það sem þú átt að efast um fyrst.

Hljómar eins og allir hinir

Hvað þetta afhjúparHvort skilaboðin þín aðgreini þig eða hvort þú hljómar eins og allir aðrir í þínum bransa.

Promptið

„Þú ert reyndur copywriter og business strategist með skarpt auga fyrir aðgreiningu.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er hvernig ég lýsi því sem ég geri:
[Límdu inn bio-ið þitt, texta af forsíðunni eða lýsinguna sem þú notar þegar þú kynnir þig.]

Til samanburðar, ef þú vilt raunverulegan bransasamanburð:
[Límdu inn þrjú til fimm dæmi um hvernig aðrir í bransanum lýsa því sem þeir gera.]

Settu greininguna upp í töflu með þremur dálkum: Setning, Flokkun, Af hverju. Flokkaðu setningu sem almenna ef hún inniheldur ekkert sem bindur hana við mína reynslu, aðferð, afstöðu, sönnun eða niðurstöðu. Flokkaðu hana sem sértæka ef hún inniheldur eitthvað sem aðeins ég eða mjög fáir gætu sagt með trúverðugum hætti.

Sýndu mér svo, fyrir neðan töfluna, aðeins þann texta sem flokkaðist sem sértækur.

Ekki þykjast hafa borið mig saman við tiltekna keppinauta nema ég hafi látið texta frá þeim fylgja. Ef lítið stendur eftir, segðu mér það hreint út. Ekki endurskrifa textann enn.“

Hvernig á að lesa svariðÞað sem stendur eftir þegar klisjurnar eru farnar er hráefnið í aðgreininguna þína. Oft er það lítið. Það er í lagi. Eitt satt og sértækt atriði sem aðeins þú getur sagt er sterkara en heil síða af orðum sem allir nota. Ekki flýta þér að fylla tómið sem myndast. Sittu með því. Það sem stendur eftir er byrjunin á rödd og skilaboðum sem eru raunverulega þín.

Það sem hún hugsar en segir ekki

Hvað þetta afhjúparLíklegustu efasemdirnar sem kaupandinn þinn ber ekki upp. Tilgátur sem þú getur prófað, ekki staðreyndir.

Promptið

„Þú ert strategist sem skilur hvers vegna fólk hikar við að kaupa.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er tilboðið, fyrir hvern það er, og það sem ég veit um hana:
[Lýstu tilboðinu og manneskjunni. Settu inn það sem þú hefur raunverulega heyrt hana segja: úr samtölum, skilaboðum, sölusímtölum, könnunum eða umsögnum. Skrifaðu „veit ekki“ ef þú hefur ekkert af því enn.]

Gefðu mér mest fimm mögulegar efasemdir sem hægt er að tengja við upplýsingarnar sem ég gaf. Ef þú nefnir algengt kaupmynstur sem kemur ekki úr gögnunum mínum, merktu það skýrt sem almenna tilgátu. Ekki gera ráð fyrir að uppgefin ástæða feli endilega aðra ástæðu.

Fyrir hverja efasemd:
1. Orðaðu hana eins og hún myndi hugsa hana.
2. Segðu á hverju þú byggir hana. Er það eitthvað sem ég gaf þér, eða almennt mynstur?
3. Nefndu eina spurningu sem ég gæti spurt hana til að staðfesta hvort þetta er raunverulegt.

Ekki finna upp sögu, áföll eða ástæður sem ég hef ekki nefnt. Ef þú ert að giska, segðu að þú sért að giska.“

Hvernig á að lesa svariðÞetta eru tilgátur, ekki staðreyndir. Það sem viðskiptavinurinn segir er alltaf fyrsti gagnapunkturinn, ekki eitthvað sem á að afskrifa. Stundum þýðir „of dýrt“ nákvæmlega það. Stundum tengist það virði, tímasetningu eða efasemdum um að geta nýtt tilboðið. Gervigreindin getur hjálpað þér að búa til tilgátur og betri spurningar. Hún getur ekki staðfest hvað manneskjan hugsar. Það gerir þú með því að tala við hana.

Leiðin frá efni að tilboði

Hvað þetta afhjúparHvort efnið þitt leiði fólk nær tilboðinu eða standi bara fyrir sínu. Og hvern það virðist höfða til.

Promptið

„Þú ert strategist sem greinir hvernig efni leiðir að eftirspurn og sölu.

Leiðbeiningar gervigreindar

Byggðu svarið á því sem ég set hér inn, skjölum sem ég læt fylgja og eldra samhengi sem þú hefur raunverulegan aðgang að. Segðu skýrt hvað kemur úr staðfestum upplýsingum, hvað kemur úr eldra samhengi og hvað er ályktun. Ef upplýsingar vantar sem gætu breytt niðurstöðunni verulega, spurðu mig að hámarki þrjár markvissar spurningar áður en þú svarar. Annars skaltu halda áfram og merkja óvissuna.

Hér er tilboðið sem efnið á að styðja, næsta skrefið sem ég vil að fólk taki og hverjum það er ætlað:

[Lýstu tilboðinu, markhópnum og næsta skrefi, til dæmis að fylgja, skrá sig, senda skilaboð, bóka eða kaupa.]

Hér er efnið sem ég hef birt undanfarið:
[Límdu inn nokkur nýleg dæmi: færslur, myndatexta eða annað efni.]

Ef þú hefur tölur, settu þær inn fyrir hvert stykki:
[Áhorf, vistanir, athugasemdir, heimsóknir á prófíl, smellir á hlekk, fyrirspurnir, og sölur sem rekja má til efnisins. Skrifaðu „veit ekki“ þar sem þú hefur ekki tölur.]

Fyrir hvert stykki, segðu mér:
1. Hvaða meginhlutverki þjónar það: athygli, trausti, fræðslu, eftirspurn eða sölu?
2. Er skýr og eðlileg leið frá þessu efni að næsta skrefi og tilboðinu? Sýndu hana.
3. Hvern er það líklegt til að höfða til miðað við orðalag og viðfangsefni? Ef ég gaf þér engar tölur, segðu að þetta sé tilgáta um uppbyggingu efnisins, ekki niðurstaða um raunverulegt áhorf.

Vertu heiðarleg um hvað af þessu er efni sem skemmtir og hvað er efni sem leiðir.“

Hvernig á að lesa svariðEfni sem leiðir hvergi getur samt byggt traust og tengsl. En ef ekkert af efninu leiðir fólk nær tilboðinu er það ekki að vinna markvisst fyrir reksturinn, jafnvel þótt það sé gott. Horfðu sérstaklega á þriðja liðinn, en ekki rugla líklegu aðdráttarafli saman við raunveruleg áhorfendagögn. Ef tölurnar sýna að efnið dregur að sér rangan hóp er vandinn ekki endilega að þig vanti fleiri fylgjendur. Þú gætir verið að safna röngu fólki, og það getur litið út eins og árangur þótt það sé það ekki.

Þetta er speglun. Ekki greining.

Promptin hjálpa þér að sjá mynstur í því sem þú setur inn. En þau geta ekki séð það sem vantar úr frásögninni. Þau vita ekki hvaða forsendur þú tekur sem gefnar eða hvaða spurningu þú hefur ekki enn spurt.

Þar liggur munurinn á góðri speglun og raunverulegri greiningu.

Ég sé hvað er að. Oft áður en þú sérð það sjálf. Og ég veit hvað þú þarft að gera næst.

Það er vinnan sem við gerum saman í Norðurstjörnunni.

Skoða Norðurstjörnuna